Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1419, 128. löggjafarþing 610. mál: vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (lækkun gjalds).
Lög nr. 19 26. mars 2003.
Þingskjal 1419, 128. löggjafarþing 610. mál: vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (lækkun gjalds).
Lög nr. 19 26. mars 2003.
Lög um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- 3. tölul. orðast svo:
- 13% vörugjald:
- Kranabifreiðar og borkranabifreiðar sem eru 5 tonn eða minna að leyfðri heildarþyngd.
- Grindur með hreyfli fyrir vélknúin ökutæki.
- Yfirbyggingar, þar með talin ökumannshús fyrir vélknúin ökutæki.
- Tengivagnar og festivagnar til vöruflutninga sem eru 5 tonn eða minna að leyfðri heildarþyngd, aðrir tengi- og festivagnar.
- Dráttarbifreiðar fyrir festivagna sem aðallega eru gerðar til að draga annað ökutæki, að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
- Ökutæki, sem aðallega eru ætluð til vöruflutninga, að heildarþyngd 5 tonn eða minna.
- Vélknúin ökutæki til sérstakra nota, gálgabifreiðar o.fl., sem ekki eru aðallega hönnuð til flutnings á mönnum eða vörum og ekki eru tilgreind annars staðar í þessari grein, að heildarþyngd 5 tonn eða minna,
- Fólksbifreiðar og önnur vélknúin ökutæki 40 ára og eldri.
- 4. tölul. fellur brott.
2. gr.
Við 2. mgr. 5. gr. laganna bætist nýr töluliður sem orðast svo:- Vörugjald af bifreiðum sem eru sérstaklega útbúnar og notaðar til líkflutninga skal vera:
Flokkur | Sprengirými aflvélar | Gjald í % |
I | 0–2.000 | 10 |
II | Yfir 2.000 | 13 |
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 14. mars 2003.